2014-01-08 11:19:21 CET

2014-01-08 11:20:22 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breyting á stjórn Íbúðalánasjóðs.


Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Drífu Snædal í stjórn
Íbúðalánasjóðs í stað Stefáns Ólafssonar. 

Drífa er fædd 5. júní 1973. Hún lauk námi sem tækniteiknari frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1998, viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2003 og meistaraprófi í
vinnurétti frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 2012. 

Drífa starfaði sem tækniteiknari hjá Verkfræðistofunni Afli og Orku ehf 1997
til 2000 og sem bókari á sömu verkfræðistofu frá 1999 til 2006. Á árunum 2003
til 2004 var hún fræðslu- og kynningarstýra Samtaka um Kvennaathvarf og síðar
framkvæmdastýra samtakanna til 2006. Árið 2006 tók hún við sem framkvæmdastýra
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og gegndi því starfi til ársins 2010.
Frá árinu 2012 hefur hún verið framkvæmdastjóri Starfsgreiningarsambands
Íslands. 

Drífa var formaður Iðnnemasambands Íslands 1996 - 1998, sat í stjórn
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 1999 - 2007 þar af ritari samtakanna
2005 til 2007. Varaþingmaður var hún á tímabilinu 1999 - 2003 og tók sæti á
þingi í tvígang á tímabilinu. Drífa var varamaður í Mannréttindanefnd
Reykjavíkurborgar 2002 - 2006 og í stjórn Kvennaskólans 2006 - 2009. Hún sat í
nefnd um breytingar á stjórnskipan 2009 og í nefnd um breytingar á lögum um
fjármál stjórnmálaflokka það sama ár. Einnig sat hún í stjórn Fríhafnarinnar
ehf frá júní 2009 -2011, í stjórn Borgarholtsskóla frá 2013 og í stjórn
Hlaðvarpans - menningarsjóðs kvenna frá 2007, þar af gjaldkeri 2007 - 2009,
formaður 2009 - 2011 og aftur frá árinu 2013.