2017-07-05 17:31:02 CEST

2017-07-05 17:31:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skiptiútboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 28 1115 & RIKB 20 0205


Föstudaginn 7. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokkunum RIKB 28 1115 og RIKB 20 0205. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Athugið að aðeins er hægt að kaupa bréf í RIKB 28 1115 og í RIKB 20 0205 með sölu á RIKB 19 0226, sem fellur á gjalddaga 26. febrúar 2019. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 19 0226 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 106,300 (109,560274 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 12. júlí 2017. Til skýringar, jafngildir verðið 4,61% í ávöxtunarkröfu. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 12. júlí 2017. 

 

Nánari upplýsingar veitir Laufey Birna Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631.