|
|||
![]() |
|||
2009-05-25 12:53:37 CEST 2009-05-25 12:54:36 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- SPM fær framlengda greiðslustöðvunEins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í Nasdaq OMX Iceland þann 27. apríl síðastliðinn fékk SPM greiðslustöðvun í þrjár vikur. Í dag var greiðslustöðvunin framlengd til 30. Júní. Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er undirbúa nauðasamninga við lánadrottna á grundvelli samkomulags við helstu lánadrotta sjóðsins. Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstarréttarlögmaður. Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf. |
|||
|