|
|||
2009-06-26 11:24:04 CEST 2009-06-26 11:25:04 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirUNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFAUNDIRRITUN SAMNINGA Í TENGSLUM VIÐ ÚTGÁFU ÍBÚÐABRÉFA OG VIÐSKIPTAVAKT Á EFTIRMARKAÐI Í gær 25. Júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við útgáfu Íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang Íbúðalánasjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 1. júlí 2009 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Nýi Glitnir banki hf., Nýi Kaupþing banki hf., MP banki hf. og NBI hf. Aðalmiðlarar/Viðskiptavaki hafa einir aðgang að útboðum Íbúðalánasjóðs. Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir. Aðalmiðlari/Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum Íbúðabréfa fyrir a.m.k. 600 milljónir króna. Aðalmiðlari/viðskiptavaki er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk Íbúðabréfa í OMX Nordic Exchange á Íslandi. Aðalmiðlari/viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum. Aðalmiðlara/viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 500 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup-og sölutilboða. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2009 til 30. júní 2010. Þóknun til allra aðalmiðlara/viðskiptavaka íbúðabréfa á samningstímanum verður 16,25 milljónir króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði og 0,15% þóknun í útboðum Íbúðabréfa. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur samningsaðila. |
|||
|