|
|||
![]() |
|||
2008-01-03 10:06:51 CET 2008-01-03 10:06:51 CET REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir- Fjármögnun og lausafjárstaða Straums fjárfestingabankaMarkaðsaðstæður hafa verið fjármálafyrirtækjum erfiðar að undanförnu, einkum hvað varðar lausafjárstöðu. Í ljósi þess hefur Straumur ákveðið að veita nýjar upplýsingar um fjármögnun bankans og lausafjárstöðu. Langtímaskuldir Straums sem gjaldfalla á árinu 2008 nema 717 milljónum evra (65,4 milljörðum króna). Þann 1. janúar 2008 dugðu tryggar lausafjáreignir Straums til að standa við allar skuldbindingar bankans í meira en 270 daga. Sé miðað við svokallað umframlausafé, þar sem einnig er tekið tillit til annars konar lausafjáreigna á borð við hlutabréf í skráðum félögum, er bankinn fjármagnaður í 340 daga. Tryggt lausafé bankans skiptist í lausafé, verðbréf sem eru hæf í endurhverfum viðskiptum seðlabanka og samningsbundnar veltulánalínur sem eru til lengri tíma en eins árs og án svonefndra MAC-ákvæða (e. material adverse change clause). Það er og stefna Straums að dreifa fjármögnun sinni og hefur bankinn að undanförnu eingöngu sótt fé erlendis, sem er til marks um hve fjármögnun bankans er öflug og dreifð. Fjármögnun Straums hefur gengið afar vel á undanförnum vikum. Horfur í þeim efnum árið 2008 eru einnig góðar. Frekari upplýsingar veitir: Georg Andersen forstöðumaður fjárfestatengsla Sími: 585 6707 Farsími: 858 6707 |
|||
|