2016-04-22 11:43:23 CEST

2016-04-22 11:43:23 CEST


Islandic English
Icelandair Group hf. - Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2016


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2016,
fimmtudaginn 28. apríl 2016. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og
hluthafa verður haldinn föstudaginn 29. apríl 2016 á Icelandair Hótel Reykjavík
Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils
Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum
ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 8:30 og verður í sal 2. 
Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að
nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og
í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf. 

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-2015/