|
|||
2009-09-25 23:02:17 CEST 2009-09-25 23:03:17 CEST REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaHlutafjáraukningStjórn Marel Food Systems hf. ákvað á fundi sínum þann 23. september 2009 að nýta heimild í gr. 15.2. í samþykktum félagsins til að auka hlutafé og gefa út nýja hluti að nafnvirði kr. 9.131.725. Hlutafjáraukningin var háð því skilyrði að gengið yrði frá kaupum sjóða á vegum Columbia Wanger Asset Management, L.P. á 5,2% hlut í Marel, sem nú hefur verið uppfyllt (sjá fréttatilkynningu Marels, dags. 25. september 2009). Eftir hækkunina verður heildarhlutafé Marel Food Systems hf. kr. 616.000.000. Samkvæmt 15.2. gr. samþykktanna hafa hluthafar að fullu fallið frá forkaupsrétti. |
|||
|