|
|||
2011-10-05 15:32:08 CEST 2011-10-05 15:33:11 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun undirritar samning um verktakafjármögnun vegna BúðarhálsvirkjunarLandsvirkjun hefur undirritað lánasamning við SEB AG í Þýskalandi vegna verksamnings sem fyrirtækið gerði um framleiðslu og uppsetningu á véla- og rafbúnaði Búðarhálsvirkjunar. Lánið er til 21 árs að fjárhæð um 45 milljónir Bandaríkjadollara eða að jafnvirði um 5,4 milljarða króna. Lánið er á hagstæðum kjörum og hefjast greiðslur jafnra afborgana höfuðstóls árið 2014. Reykjavík, 5. október 2011 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 515-9010 netfang: rafnar@lv.is |
|||
|