|
|||
2016-05-24 18:08:28 CEST 2016-05-24 18:08:28 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 3.280 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 1.460 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 1.460 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,71%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 10.140 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 11.600 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Engum tilboðum var tekið í verðtryggða flokkinn LBANK CBI 22. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 31. maí 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [HUG#2015169] |
|||
|