|
|||
![]() |
|||
2010-12-02 15:41:41 CET 2010-12-02 15:42:40 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - FyrirtækjafréttirSKIPTI GREIÐA 19 MILLJARÐA KRÓNA AF LÁNUMSkipti hf. hafa í öllum meginatriðum lokið samningum við lánardrottna félagsins og er vinna við skjalagerð á lokastigi. Í samkomulaginu felst meðal annars að Skipti greiða niður alls um 19 milljarða króna af lánum félagsins. Með því að greiða um 19 milljarða króna inn á lán félagsins mun sambankalán Skipta lækka úr um 41,7 milljörðum króna í um 22,7 milljarða króna. Engar skuldir eru afskrifaðar og öll lán Skipta eru eftir sem áður í skilum. Viðræður hafa staðið um nokkurt skeið um að Skipti greiði lán félagsins hraðar niður en upphaflegir lánasamningar gerðu ráð fyrir. Lausafjárstaða Skipta hefur verið mjög sterk, félagið átti í lok júní um 16,6 milljarða króna í handbæru fé og í júlí var gengið frá sölu Skipta á norræna upplýsingatæknifyrirtækinu Sirius IT með umtalsverðum söluhagnaði. Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi hækkuðu skuldir Skipta umtalsvert líkt og flestra annarra íslenskra fyrirtækja. Þeir fjármunir sem nú eru greiddir hafa fengist við sölu erlendra eigna félagsins annars vegar og hins vegar með því að beita ítrasta aðhaldi í rekstri. Frekari upplýsingar veita: Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, s. 550-6002 Pétur Þ. Óskarsson, yfirmaður samskipta, s. 863-6075 |
|||
|