|
|||
2022-01-19 16:53:02 CET 2022-01-19 16:53:02 CET Marel hf. - FjárhagsdagatalMarel: Ársuppgjör 2021 birt 2. febrúar, rafrænn afkomufundur 3. febrúar 2022Marel hf. mun birta ársuppgjör 2021 eftir lokun markaða þann 2. febrúar 2022. Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum Fimmtudaginn 3. febrúar 2022 kl 8:30 að íslenskum tíma verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni. Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn. Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
Fjárhagsdagatal
Fjárfestatengsl Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001. Um Marel Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.
|
|||
|