|
|||
2016-11-17 15:02:09 CET 2016-11-17 15:02:09 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.120 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.760 milljónir kr. Í heild bárust tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.620 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,58% - 5,90%. Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 1.420 milljónir á 5,70% flötum vöxtum. Í heild bárust tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.640 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,63% - 5,90%. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 780 milljónir á 5,70% flötum vöxtum. Í heild bárust tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 860 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,90% - 6,40%. Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 560 milljónir á 5,98% flötum vöxtum. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í næstu viku. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|