|
|||
2012-05-04 15:44:26 CEST 2012-05-04 15:45:28 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumBreytingar á skipan stjórnar Íbúðalánasjóðs.Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað Jóhann Ársælsson fyrrverandi alþingismann formann stjórnar Íbúðalánasjóðs í stað Katrínar Ólafsdóttur lektors sem óskað hefur lausnar vegna annarra starfa. Jafnframt hefur ráðherra skipað Henný Hinz, hagfræðing, sem aðalmann í stjórnina og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, sérfræðing í innanríkisráðuneytinu, sem varamann hennar. Stjórn Íbúðalánasjóðs er þar með skipuð eftirtöldum fulltrúum: -- Jóhann Ársælsson, fyrrverandi alþingismaður , formaður -- Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, varaformaður -- Henný Hinz, hagfræðingur -- Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður -- Elín R. Líndal, framkvæmdastjóri Til vara: -- Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi -- Steinar Harðarson, verkfræðingur -- Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu -- Sigríður Á. Andersen, héraðsdómslögmaður -- Hákon Hákonarson, vélvirki |
|||
|