2008-07-21 13:05:39 CEST

2008-07-21 13:06:37 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

Kynning á uppgjöri annars ársfjórðungs 2008 verður 1. ágúst n.k.


Exista hf. mun birta afkomu sína fyrir fyrstu sex mánuði 2008 eftir lokun
markaða fimmtudaginn 31. júlí næstkomandi. 

Kynningarfundur 1. ágúst

Kynning á uppgjörinu fer fram í höfuðstöðvum Exista föstudaginn 1. ágúst kl.
8:30. Þar munu stjórnendur félagsins gera grein fyrir reikningum og svara
fyrirspurnum. 

Húsið opnar kl. 8:00 og verður boðið upp á léttan morgunverð áður en kynning
hefst. 

Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Exista að Ármúla 3 í Reykjavík, á 5. hæð.
Kynningarfundurinn fer fram á ensku og er opinn hluthöfum og öðrum
markaðsaðilum. 

Netvarp og símafundur

Kynningarfundinum í Reykjavík verður varpað í beinni útsendingu á vef
félagsins, www.exista.com, og hefst netvarpið kl. 8:30. 

Jafnframt er hægt að taka þátt í fundinum símleiðis og leggja fram spurningar
með því að hringja í síma 800 8660 eða +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). 

Að fundi loknum má nálgast kynningarefni og upptöku af fundinum á heimasíðu
Exista, www.exista.com.