2013-03-06 19:01:30 CET

2013-03-06 19:02:32 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Eimskip kynnir umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsins


Vikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Bretland og meginland Evrópu
og styttri siglingatími til og frá Bandaríkjunum 


  -- Vikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Bretland og meginland
     Evrópu
  -- Aukin ferðatíðni og styttri siglingatími til og frá Bandaríkjunum
  -- Þjónusta tvisvar í viku fyrir ferskan fisk frá Íslandi og Færeyjum
  -- Aukin þjónusta við olíuiðnaðinn með siglingum til og frá Skotlandi
  -- Ný þjónusta fyrir uppsjávarfisk með beinum siglingum inná Eystrasalt

Eimskip hefur verið með í undirbúningi  breytingar á siglingakerfi félagsins
sem miða að því að útvíkka kerfið á Norður-Atlantshafi, fjölga viðkomuhöfnum og
bæta við einu gámaskipi í flotann. Breytingar á viðkomuhöfnum í Bandaríkjunum
gera það mögulegt að ráðast nú í frekari breytingar. Frá og með 26. mars 2013
mun Eimskip hefja viðkomur í Portland, Maine á austurströnd Bandaríkjanna í
stað þess að sigla á Everett og Norfolk í Virgina, en með þeirri ráðstöfun
styttist hringferðartími skipanna. Þann 14. mars n.k. fer Brúarfoss frá
Reykjavík í sína fyrstu strandsiglingu norður fyrir Ísland með tengingu við
Færeyjar, Bretland og meginland Evrópu. 

Helstu breytingar á siglingakerfinu eru þessar:

  -- Ný vikuleg strandsiglingaleið
 sem tengir Ísland við Færeyjar, Bretland (Skotland) og meginland Evrópu.
     Skip félagsins munu koma vikulega við í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri og
     Reyðarfirði, sömu höfnum og innanríkisráðuneytið fyrirhugar að bjóða út sem
     fastar viðkomuhafnir í útboði á strandsiglingum. Mögulegt er að koma við í
     fleiri höfnum ef þörf er á. Eimskip er með skrifstofu- og hafnaraðstöðu á
     framangreindum stöðum svo félagið er vel í stakk búið til að sinna þessum
     breytingum á siglingakerfinu.
Brúarfoss mun leggja af stað í sína fyrstu ferð samkvæmt vikulegri áætlun
     þann 14. mars frá Reykjavík. Breyting þessi gerir útflytjendum af
     landsbyggðinni kleift að flytja ferskan fisk beint á fimmtudagsmarkað í
     Bretlandi og Frakklandi og frosinn fisk til dreifingar á meginland Evrópu
     og víðar.
  -- Aukin ferðatíðni og styttri siglingartími til og frá Bandaríkjunum
, auk þess sem Ameríkuskip félagsins á leið vestur eiga þess kost að hafa
     viðkomu m.a. á Akureyri og Ísafirði á leið sinni frá Noregi. Með þessu
     skapast beinn aðgangur að hráefnisöflun í Noregi og Rússlandi fyrir
     fiskvinnslur á Íslandi.
  -- Ný þjónusta fyrir ferskan fisk frá Færeyjum
, því með vikulegum siglingum á nýrri siglingaleið með viðkomu í Færeyjum á
     hverjum mánudegi gefst Færeyingum kostur á að flytja ferskan fisk í gámum
     til dreifingar á Bretlandseyjum á miðvikudegi. Auk viðkomu í Þórshöfn
     verður komið við í Vágur á Suðurey þar sem mikill vöxtur hefur verið í
     vinnslu á uppsjávarfiski.
  -- Þjónusta félagsins við vaxandi olíuiðnað á Norðurslóðum eflist
 með tengingu við Skotland sem er miðstöð olíuiðnaðarins í Bretlandi.
     Þannig skapast tækifæri og beinar tengingar fyrir norður- og austurhluta
     Íslands við uppbyggingu Íslendinga á þjónustu við væntanlegan olíuiðnað á
     Drekasvæðinu og í grænlenskri lögsögu . Tengingin er jafnframt mikilvæg
     fyrir frekari uppbyggingu félagsins á þjónustu við olíuiðnaðinn í Færeyjum
     og á Nýfundnalandi. Eimskip býður þegar uppá vikulegar siglingar frá
     Aberdeen til Noregs með frystiskipum félagsins.
  -- Bein tenging inná Eystrasalt með viðkomu í Póllandi
. Eimskip opnaði fyrr í mánuðinum skrifstofu í Gdynia í Póllandi sem lið í
     þessum breytingum.

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Það er mér sérstök ánægja að tilkynna þessar viðamiklu breytingar á
siglingakerfi Eimskips sem verið hafa í undirbúningi í meira en ár. Forsenda
þeirra  er flutningur á hafnaraðstöðu félagsins frá Everett og Norfolk í
Virginíu í Bandaríkjunum til Portland, Maine. Aukin umsvif félagsins á
Norður-Atlantshafi, í Bandaríkjunum, Nýfundnalandi, Færeyjum og Noregi gera
félaginu kleift að bjóða uppá strandsiglingaþjónustu á Íslandi. Með því að
fjölga viðkomuhöfnum á Íslandi og í Færeyjum skapast ný tækifæri fyrir
viðskiptavini Eimskips. Breytt siglingakerfi tengir frændþjóðirnar Ísland og
Færeyjar beint við inn- og útflutningsmarkaði, dregur úr umferð á  vegum ásamt
því að lækka flutningskostnað viðskiptavina. Víðsvegar um landið er  iðnaður í
þróun og er nú fjölbreyttari en áður var, auk þess sem fjölbreytni í
sjávarútvegi hefur aukist. 

Það er von mín að þessar breytingar muni gera viðskiptavinum okkar á Íslandi, í
Noregi, Færeyjum og Nýfundnalandi auðveldara með að koma afurðum sínum á markað
og kaupa hráefni með þægilegri, hagkvæmari og markvissari hætti en áður.“ 

Frekari upplýsingar

  -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími 525 7202
  -- Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi, sími 825 7221