2010-05-07 13:47:10 CEST

2010-05-07 13:48:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 OG RIKB 19 0226


Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 19 0226 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 11 0722:
Alls bárust 25 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.570 m.kr. að nafnverði. 15
tilboðum var tekið fyrir 10.485 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,30 (5,92%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 19 0226:
Alls bárust 45 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 15.660 m.kr. að nafnverði. 29
tilboðum var tekið fyrir 11.110 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 113,90 (6,61%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11.
maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 12. maí 2010.