|
|||
2010-06-04 13:45:25 CEST 2010-06-04 13:46:22 CEST SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.350 m.kr. að nafnverði. 8 tilboðum var tekið fyrir 2.600 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,798 (4,43% ávöxtunarkröfu). RIKB 25 0612: Alls bárust 47 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 15.673 m.kr. að nafnverði. 14 tilboðum var tekið fyrir 4.823 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 115,3 (6,39% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 8. júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 9. júní 2010. |
|||
|