|
|||
2015-08-27 10:52:35 CEST 2015-08-27 10:53:36 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfumArion banki hf. lauk í gær, miðvikudaginn 26. ágúst, útboði á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa sem eru óverðtryggð. Skuldabréfin eru til sjö ára og bera 6,50% fasta vexti. Í heild bárust tilboð upp á 4.300 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir samtals 4.200 milljónir kr. á ávöxtunarkröfunni 7,0%. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi í byrjun september. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|