|
|||
2011-04-29 17:02:18 CEST 2011-04-29 17:03:20 CEST REGULATED INFORMATION Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur Farice fyrir árið 2010Ársreikningur Farice ehf 2010, helstu niðurstöður. (Fjárhæðir eru í evrum) -- Rekstrartekjur voru 6,7 milljónir (2009: 5,8 milljónir) -- Rekstrar- og stjórnunarkostnaður nam 5,8 milljónum (2009: 4,5 milljónir) -- Tap ársins nam 17 milljónum ( 2009: 14,6 milljónir) Helstu atriði Á árinu 2010 stóð yfir fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf og dótturfélagsins Farice hf, í samvinnu við lánardrottna og hluthafa félaganna. Á hluthafafundum sem haldnir voru í félögunum í desember 2010 var samruni félaganna samþykktur. Ennfremur var samþykkt veruleg aukning hlutafjár í hinu sameinaða félagi, eftir að hlutafé hafði verið lækkað til að mæta uppsöfnuðu tapi. Þá var nafni sameinaða félagsins breytt í Farice ehf. Rekstrarumhverfi og fjárhagur Endurskipulagður fjárhagur Farice ehf á að tryggja að félagið geti staðið undir heilbrigðum rekstri og mætt þeim rekstri sem áætlaður er að verði á næstu árum. Tekjur félagsins eru annars vegar af viðskiptasamningum við almenn fjarskiptafélög og hins vegar af samningum við gagnaveraiðnaðinn. Árleg aukning fjarskiptaumferðar almennra fjarskiptafélaga er veruleg, en í áætlunum félagsins er þó gert ráð fyrir að meginvöxturinn verði á sviði þjónustu við gagnaver og skyldan iðnað. Þá skipta nýir samningar við lánardrottna um endurgreiðslur langtímalána afar miklu máli hvað varðar framtíð Farice ehf. Frekari upplýsingar veitir: Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sími: 893 4840 Netfang: gg@farice.is |
|||
|