2017-01-27 13:26:31 CET

2017-01-27 13:26:31 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf. : Fitch hækkar lánshæfismat í BBB með stöðugum horfum


Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur í dag hækkað lánshæfismat
Íslandsbanka í BBB/F3 úr BBB-/F3 með stöðugum horfum.

Hækkun á lánshæfismati bankans byggir að mestu á batnandi rekstrarumhverfi á
Íslandi og áframhaldandi hagvexti og bættri ytri stöðu þjóðarbúsins. Nýverið
breytti Fitch Ratings horfum fyrir lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í
jákvæðar og staðfesti lánshæfiseinkunnina BBB+ fyrir erlendar skuldir.

Fitch greinir ennfremur frá því að Íslandsbanki hafi staðið vel að endurreisn
bankans. Þá hafi fjárhagsleg endurskipulagning lánabókar gengið vel, búið sé að
greiða upp skuldir tengdum stofnun bankans og flæði á kvikum krónueignum hafi
verið vel stýrt.

Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri:

"Mikil vinna hefur farið fram síðustu ár við endurskipulagningu á eignahlið
efnahagsreiknings bankans. Endurskipulagningu á lánasafni er nú lokið,
vanskilahlutfall fer lækkandi og hverfandi hluti endurskipulagðra lána fer aftur
í vanskil.  Íslandsbanki hefur viðhaldið öflugum eiginfjár- og
lausafjárhlutföllum til að takast á við möguleg áhrif vegna afléttingar hafta og
áföllum í rekstarumhverfi.

Efnahagsumhverfi á Íslandi hefur haldist áfram hagfellt og staða bankans afar
góð. Í því ljósi greiddi bankinn út 27 milljarða í arð í desember 2016 og tók
þar með mikilvægt skref í átt að hagstæðari samsetningu á eiginfjárgrunni sínum.
Aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum er gott og bankinn nú að fullu
fjármagnaður á markaði. Hækkun á lánshæfiseinkunn Fitch í BBB/F3 með stöðugum
horfum, og hækkun S&P í október 2016 í BBB/A-2, er í takt við þessa hagstæðu
þróun."

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is
    og í síma 440 4005.


[]