2016-03-09 16:31:01 CET

2016-03-09 16:31:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 16 0615 OG RIKV 16 0915


Föstudaginn 11. mars kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 16 0615 og RIKV 16 0915 sem eru með gjalddaga 15.
júní og 15. september 2016. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 15. mars 2016.

Sótt verður um að RIKV 16 0915 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi
þriðjudaginn 15. mars 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.