2015-04-01 17:31:00 CEST

2015-04-01 17:31:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Stefna í lánamálum ríkisins 2015-2018


Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt stefnu í lánamálum ríkisins 2015 -
2018. Er þetta í fimmta sinn sem slík stefna er birt. Helstu breytingar sem
orðið hafa frá síðustu útgáfu snúa að hlutfalli skulda af vergri
landsframleiðslu (VLF). Markmiðið er nú að hlutfallið sé undir 60% í lok árs
2018 og til lengri tíma er stefnt að því að hlutfallið verði ekki hærra en 45%
af VLF. Þá er markmið um meðallánstíma lánasafnsins hækkað í 5 ár að lágmarki
og hlutfall lána ríkissjóðs sem gjaldfalla á hverju almanaksári skulu að
hámarki nema 15% af VLF. Viðmiðunarreglur fyrir samsetningu lánasafns
ríkissjóðs eru þrengdar þannig að þær verða 70-90% fyrir óverðtryggð lán og
15-30% fyrir verðtryggð lán. 

Helstu markmið við lánastýringu ríkisins eru:

  -- Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé
     mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til
     varfærinnar áhættustefnu.
  -- Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu
     ríkisins til lengri tíma litið og lágmarki endurfjármögnunaráhættu.
  -- Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og
     eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
  -- Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta
     fjármögnunarmöguleika.

Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að hver flokkur verði nægilega
stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2,
5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er
stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er
stefnt að því að meðallánstími verði 5 ár að lágmarki. 

Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja
gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa
ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta. 

Fjármála- og efnahagsráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu ríkisins, mótar stefnu
í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa. Lánamál ríkisins, sérstök
deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar í samræmi við samning
milli bankans og fjármála- og efnahagsráðuneytisins. 

Nánari upplýsingar veitir Esther Finnbogadóttir í síma 5459200 eða í tölvupósti
esther.finnbogadottir@fjr.is.