|
|||
2013-03-06 19:01:30 CET 2013-03-06 19:02:32 CET REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirEimskip kynnir umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsinsVikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Bretland og meginland Evrópu og styttri siglingatími til og frá Bandaríkjunum -- Vikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Bretland og meginland Evrópu -- Aukin ferðatíðni og styttri siglingatími til og frá Bandaríkjunum -- Þjónusta tvisvar í viku fyrir ferskan fisk frá Íslandi og Færeyjum -- Aukin þjónusta við olíuiðnaðinn með siglingum til og frá Skotlandi -- Ný þjónusta fyrir uppsjávarfisk með beinum siglingum inná Eystrasalt Eimskip hefur verið með í undirbúningi breytingar á siglingakerfi félagsins sem miða að því að útvíkka kerfið á Norður-Atlantshafi, fjölga viðkomuhöfnum og bæta við einu gámaskipi í flotann. Breytingar á viðkomuhöfnum í Bandaríkjunum gera það mögulegt að ráðast nú í frekari breytingar. Frá og með 26. mars 2013 mun Eimskip hefja viðkomur í Portland, Maine á austurströnd Bandaríkjanna í stað þess að sigla á Everett og Norfolk í Virgina, en með þeirri ráðstöfun styttist hringferðartími skipanna. Þann 14. mars n.k. fer Brúarfoss frá Reykjavík í sína fyrstu strandsiglingu norður fyrir Ísland með tengingu við Færeyjar, Bretland og meginland Evrópu. Helstu breytingar á siglingakerfinu eru þessar: -- Ný vikuleg strandsiglingaleið sem tengir Ísland við Færeyjar, Bretland (Skotland) og meginland Evrópu. Skip félagsins munu koma vikulega við í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri og Reyðarfirði, sömu höfnum og innanríkisráðuneytið fyrirhugar að bjóða út sem fastar viðkomuhafnir í útboði á strandsiglingum. Mögulegt er að koma við í fleiri höfnum ef þörf er á. Eimskip er með skrifstofu- og hafnaraðstöðu á framangreindum stöðum svo félagið er vel í stakk búið til að sinna þessum breytingum á siglingakerfinu. Brúarfoss mun leggja af stað í sína fyrstu ferð samkvæmt vikulegri áætlun þann 14. mars frá Reykjavík. Breyting þessi gerir útflytjendum af landsbyggðinni kleift að flytja ferskan fisk beint á fimmtudagsmarkað í Bretlandi og Frakklandi og frosinn fisk til dreifingar á meginland Evrópu og víðar. -- Aukin ferðatíðni og styttri siglingartími til og frá Bandaríkjunum , auk þess sem Ameríkuskip félagsins á leið vestur eiga þess kost að hafa viðkomu m.a. á Akureyri og Ísafirði á leið sinni frá Noregi. Með þessu skapast beinn aðgangur að hráefnisöflun í Noregi og Rússlandi fyrir fiskvinnslur á Íslandi. -- Ný þjónusta fyrir ferskan fisk frá Færeyjum , því með vikulegum siglingum á nýrri siglingaleið með viðkomu í Færeyjum á hverjum mánudegi gefst Færeyingum kostur á að flytja ferskan fisk í gámum til dreifingar á Bretlandseyjum á miðvikudegi. Auk viðkomu í Þórshöfn verður komið við í Vágur á Suðurey þar sem mikill vöxtur hefur verið í vinnslu á uppsjávarfiski. -- Þjónusta félagsins við vaxandi olíuiðnað á Norðurslóðum eflist með tengingu við Skotland sem er miðstöð olíuiðnaðarins í Bretlandi. Þannig skapast tækifæri og beinar tengingar fyrir norður- og austurhluta Íslands við uppbyggingu Íslendinga á þjónustu við væntanlegan olíuiðnað á Drekasvæðinu og í grænlenskri lögsögu . Tengingin er jafnframt mikilvæg fyrir frekari uppbyggingu félagsins á þjónustu við olíuiðnaðinn í Færeyjum og á Nýfundnalandi. Eimskip býður þegar uppá vikulegar siglingar frá Aberdeen til Noregs með frystiskipum félagsins. -- Bein tenging inná Eystrasalt með viðkomu í Póllandi . Eimskip opnaði fyrr í mánuðinum skrifstofu í Gdynia í Póllandi sem lið í þessum breytingum. Gylfi Sigfússon, forstjóri „Það er mér sérstök ánægja að tilkynna þessar viðamiklu breytingar á siglingakerfi Eimskips sem verið hafa í undirbúningi í meira en ár. Forsenda þeirra er flutningur á hafnaraðstöðu félagsins frá Everett og Norfolk í Virginíu í Bandaríkjunum til Portland, Maine. Aukin umsvif félagsins á Norður-Atlantshafi, í Bandaríkjunum, Nýfundnalandi, Færeyjum og Noregi gera félaginu kleift að bjóða uppá strandsiglingaþjónustu á Íslandi. Með því að fjölga viðkomuhöfnum á Íslandi og í Færeyjum skapast ný tækifæri fyrir viðskiptavini Eimskips. Breytt siglingakerfi tengir frændþjóðirnar Ísland og Færeyjar beint við inn- og útflutningsmarkaði, dregur úr umferð á vegum ásamt því að lækka flutningskostnað viðskiptavina. Víðsvegar um landið er iðnaður í þróun og er nú fjölbreyttari en áður var, auk þess sem fjölbreytni í sjávarútvegi hefur aukist. Það er von mín að þessar breytingar muni gera viðskiptavinum okkar á Íslandi, í Noregi, Færeyjum og Nýfundnalandi auðveldara með að koma afurðum sínum á markað og kaupa hráefni með þægilegri, hagkvæmari og markvissari hætti en áður.“ Frekari upplýsingar -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími 525 7202 -- Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi, sími 825 7221 |
|||
|