|
|||
2014-01-10 14:31:45 CET 2014-01-10 14:32:46 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðsMatsfyrirtækjunum Standard & Poors, Moody´s og Fitch er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber reglugerð númer 462/2013. Þessi reglugerð miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja, bæta matsferlið og auka ábyrgð fyrirtækjanna á lánshæfismati sem hefur sýnt sig að hafa mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta. Reglugerðin gildir fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en þessi reglugerð ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum. Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra. Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2014 fyrir Ísland sem hér segir: Matsfyrirtæki Dagsetning -------------------------- S&P 24. janúar -------------------------- Fitch 7. febrúar -------------------------- Moody´s 14. mars -------------------------- Moody´s 11. júlí -------------------------- S&P 18. júlí -------------------------- Fitch 1. ágúst -------------------------- Moody´s 7. nóvember -------------------------- |
|||
|