2017-02-08 16:47:52 CET

2017-02-08 16:47:52 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Boðun hluthafafundar

Aðalfundur 3.mars 2017


ICELANDAIR GROUP HF. – AÐALFUNDUR 3. MARS 2017

Haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 16:00

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
  2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
     eða tap félagsins á reikningsárinu
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
  4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu
  5. Kosning stjórnar félagsins
  6. Kosning endurskoðanda
  7. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf
  8. Önnur mál löglega fram borin

Tillögur

  1. Ársreikningur (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur
fyrir árið 2016 verði samþykktur. 

  1. Arður (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að greiddur verði
arður til hluthafa að fjárhæð 565 m.kr. í íslenskum krónum, eða 0,11 kr. á
hvern hlut. Arðsréttindadagur verði 7. mars 2017 þannig að hluthafar
tilgreindir í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs
vegna rekstrarársins 2016. Arðleysisdagur, það er sá dagur sem viðskipti
hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2016, verði
6. mars 2017, næsta viðskiptadag eftir aðalfund. Útborgunardagur verði 30. mars
2017. 

  1. Þóknun til stjórnarmanna ( liður 3) 

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að stjórnar- og
nefndarlaun verði óbreytt frá síðasta ári: Stjórnarmenn fái 300.000 krónur á
mánuði, formaður fái 600.000 krónur á mánuði, varaformaður fái 450.000 krónur á
mánuði, nefndarmenn í undirnefndum fái 110.000 krónur á mánuði, formaður
endurskoðunarnefndar fái 250.000 krónur á mánuði og formaður starfskjaranefndar
140.000 krónur á mánuði. 

  1. Starfskjarastefna (liður 4)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi
starfskjarastefna verði samþykkt. Stefnan er óbreytt frá síðasta fundi, nema
breytingar hafa verið gerðar á 4. mgr. 3. gr. og 5. mgr. 7. gr. 

  1. Endurskoðandi (liður 6)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG hf. verði
endurskoðunarfyrirtæki félagsins, en að Alexander Eðvardsson og Auður Ósk
Þórisdóttir muni annast endurskoðunina f.h. KPMG. 

  1. Heimild til kaupa á eigin bréfum (liður 7)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að félaginu verði
heimilt að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af hlutabréfum félagsins, skv.
55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt
með hluti í félaginu eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.  Ekki er
heimilt að kaupa eigin hluti á hærra verði en nemur verði síðustu óháðu
viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar
sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Slík kaup eru þó
heimil ef þau eru gerð af viðskiptavaka skv. 116. gr. laga um
verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119.
gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli 118.
og 131. gr. sömu laga.

Starfskjarastefna.pdf