|
|||
2015-06-30 18:52:23 CEST 2015-06-30 18:53:23 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Samrunaáætlun Landsbankans og Sparisjóðs Norðurlands samþykktBankaráð Landsbankans hf. og stjórn Sparisjóðs Norðurlands hafa þann 30. júní 2015 samþykkt samrunaáætlun félaganna. Samruni lýtur lögbundnu ferli sem tekur að lágmarki fjórar vikur, frá því hann er fyrst auglýstur með formlegum hætti. Með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila og stofnfjárfundar mun því samruni fyrirtækjanna verða að veruleika í ágúst. Þá munu allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins renna inn í Landsbankann og hann tekur við rekstri allra útibúa sjóðsins. Stjórn Sparisjóðs Norðurlands leitaði til Landsbankans þann 9. júní til að kanna áhuga á samruna vegna óvissu um framtíð sjóðsins. Nánari upplýsingar: Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn.is 410 4011 eða 899 9352 |
|||
|