|
|||
![]() |
|||
2015-06-22 17:15:52 CEST 2015-06-22 17:16:54 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. stækkar flokk sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag sölu á LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Útgáfan var stækkuð um 3.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.760 m.kr. í sama flokki og nemur heildarstærð flokksins því 4.760 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 26. júní 2015 en Straumur fjárfestingabanki hf. mun sinna viðskiptavakt. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Nánari upplýsingar: Kolbrún Guðlaugsdóttir, ir@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679 |
|||
|