2010-12-03 16:32:59 CET

2010-12-03 16:33:59 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Miðvikudaginn 8. desember kl. 14:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu bréf í tveggja ára flokknum RIKB 12 0824.  Heildarfjárhæð
samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 10. desember 2010.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 fimmtudaginn 9.
desember 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði
öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir
þessi viðskipti er 10. desember 2010.