|
|||
![]() |
|||
2016-03-17 10:26:17 CET 2016-03-17 10:26:17 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í gær, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.520 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 660 milljónir kr. Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 500 milljónir á 6,50% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 160 milljónir á 6,48% flötum vöxtum. Öllum tilboðum í 12 mánaða víxla var hafnað að þessu sinni. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í næstu viku. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|