2017-10-02 18:09:13 CEST

2017-10-02 18:09:13 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðs


Landsbankinn  hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum
flokkum, LBANK 180312 og LBANK 180410 og nýjum flokki, LBANK 181010.

Heildartilboð í útboðinu voru 14 talsins og námu samtals 1.380 m. kr.

Fjögur  tilboð  að  fjárhæð  420 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 180312 og voru
vextir tilboða á bilinu 4,55%-4,70%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Átta  tilboð að fjárhæð 840 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180410 og voru vextir
tilboða  á bilinu 4,55%-4,70%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 340 m. kr. á 4,60%
flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7273.

Tvö  tilboð að fjárhæð 120 m. kr. bárust  í flokkinn LBANK 181010 og voru vextir
tilboða á bilinu 4,65%-4,90%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. október 2017.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.  

[]