|
|||
![]() |
|||
2017-10-06 11:57:09 CEST 2017-10-06 11:57:09 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 10. október kl. 15:00. Boðnir verða til sölu tveir verðtryggðir flokkar, LBANK CBI 24 og LBANK CBI 28 og tveir óverðtryggðir flokkar, LBANK CB 21 og LBANK CB 23. LBANK CB 23 er nýr markflokkur. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 17 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfa í flokki LBANK CB 17 er fyrirfram ákveðið og miðast við ávöxtunarkröfuna 5,667% sem jafngildir verðinu 100,0000 (að viðbættum áföllnum vöxtum er verðið 105,9000). Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. [] |
|||
|