|
|||
2010-04-20 13:43:11 CEST 2010-04-20 13:44:10 CEST REGULATED INFORMATION Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - FyrirtækjafréttirFjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf og dótturfélagsins Farice hf.Samkomulag það sem í gangi hefur verið á milli Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. og kröfuhafa þess hefur verið framlengt til 14. maí n.k. Samkomulagið felur sem fyrr í sér að félagið fær frest til að greiða eða semja um gjaldfallnar afborganir. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. hefur að undanförnu unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu í samstarfi við kröfuhafa og aðra hagsmunahafa félagsins með aðstoð ráðgjafa. Farice hf., dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Farice ehf., hefur einnig framlengt samskonar samkomulagi við helstu kröfuhafa sína til 14. maí n.k. |
|||
|