2016-12-15 15:11:32 CET

2016-12-15 15:11:32 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm
mánaða.  Í heild bárust tilboð upp á 2.940 milljónir kr. og var tilboðum tekið
fyrir 1.040 milljónir kr. 

Í heild bárust tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 960 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,30% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 320
milljónir á 5,37% flötum vöxtum. 

Í heild bárust tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.380 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,30% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 320
milljónir á 5,37% flötum vöxtum. 

Í heild bárust tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 600 milljónir kr., á
flötum vöxtum á bilinu 5,61% - 6,70%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 400
milljónir á 5,68% flötum vöxtum. 

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í
næstu viku. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.