|
|||
![]() |
|||
2016-12-15 15:46:45 CET 2016-12-15 15:46:45 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: Arion banki lýkur víxlaútboði - Frétt birt 2016-12-15 15:10:31 CETLeiðrétting: Fyrir 5 og 6 mánaða víxlana voru samþykkt tilboð að nafnverði 220 milljónir króna en ekki 320 milljónir. -- Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.940 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.040 milljónir kr. Í heild bárust tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 960 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,30% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 220 milljónir á 5,37% flötum vöxtum. Í heild bárust tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.380 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,30% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 220 milljónir á 5,37% flötum vöxtum. Í heild bárust tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 600 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,61% - 6,70%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 400 milljónir á 5,68% flötum vöxtum. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í næstu viku. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|