|
|||
2010-02-08 16:41:08 CET 2010-02-08 16:42:07 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 10 0615Fimmtudaginn 11. febrúar kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0615 sem er með gjalddaga 15. júní 2010. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 15. febrúar 2010. Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi þriðjudaginn 16. febrúar 2010. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|