2008-05-21 18:21:00 CEST

2008-06-03 16:22:59 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

- Sérstakt útboð ríkisbréfa - RIKB 08 1212


Vegna mikillar eftirspurnar eftir stuttum ríkistryggðum skuldabréfum hefur
ríkissjóður tekið ákvörðun um að mæta henni með sölu í ríkisbréfaflokki, RIKB
08 1212 sem er á gjalddaga 12. desember 2008. Framangreint útboð mun koma sem
viðbót við útgáfu sem var tilkynnt þann 14. janúar sl. í Ársáætlun í lánamálum
ríkissjóðs 2008. 

Útboðið fer fram þriðjudaginn 27. maí klukkan 14:00 með tilboðsfyrirkomulagi
hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 15.000 milljónir króna að nafnverði.
Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en
þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein
milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 29. maí  2008.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa: 

Flokkur   			
RIKB 08 1212

Lokagjalddagi
12.12.2008			        

Útistandandi fjárhæð
22.350 m kr.

Lánstími
6,5 mán.

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.