|
|||
![]() |
|||
2015-03-27 15:02:45 CET 2015-03-27 15:03:46 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar tvo flokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 1.180.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 2.020.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Í heild bárust tilboð upp á 4.340 milljónir kr. Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á næsta verðtryggða útboð í júní. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|