2016-08-12 18:12:12 CEST

2016-08-12 18:12:12 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Frumvarp til breytinga á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál


Húsnæðis- og velferðarráðherra hefur kynnt frumvarp til breytinga á lögum nr.
44/1998 um húsnæðismál sem snýr framtíðarskipan húsnæðismála. Í frumvarpi þessu
er gert ráð fyrir nokkrum breytingum á starfsemi Íbúðalánasjóðs. Breytingarnar
eru þessar helstar: 

  -- Skerpt er á hlutverki sjóðsins í stefnumótun og áætlanagerð í
     húsnæðismálum.
  -- Breytingar á ákvæðum um hlutverk sjóðsins til samræmis við ný lög um
     almennar íbúðir vegna veitingu stofnframlaga.
  -- Dregið er úr heimildum sjóðsins til að veita lán til einstaklinga til kaupa
     á fasteignum til eigin nota.
Svipað fyrirkomulag og hjá Husbanken í Noregi og ARA í Finnlandi.
  -- Kveðið er á um bókhaldslegan aðskilnað milli eldra lánasafns og þeirra
     verkefna sem sjóðurinn kemur til með að hafa verði frumvarpið að lögum.

Lykilhlutverk í stefnumótun og áætlanagerð í húsnæðismálum.

Stefnumótun, greiningum og áætlanagerð er gert hærra undir höfði og ákvæði um
húsnæðisáætlanir sveitarfélaga og skyldu þeirra til að aðstoða þá sem eiga
erfitt með að afla sér húsnæðis eru skýrð. Íbúðalánasjóði er falið að annast
veitingu stofnframlaga og eftirlit með þeim aðilum sem fengið hafa slík framlög
en grundvöllur þeirra er góð yfirsýn og áætlanir um húsnæðisþörf. 

Samræming við ný lög um almennar íbúðir vegna stofnframlaga.

Sjóðnum er með lögum nr. 52/2016 um almennar íbúðir falið umsjá með veitingu
stofnframlaga og eftirlit með þeim sem fengið hafa slík framlög. Miða
breytingarnar að því að ákvæði um sjóðinn endurspegli þetta hlutverk. 

Jafnframt eru breytingar á ákvæðum um tekjur sjóðsins  en gert er ráð fyrir að
stofnframlög verði fjármögnuð með framlögum úr ríkissjóði í samræmi við fjárlög
hverju sinni. 

Dregið úr heimildum sjóðsins til að veita lán til einstaklinga.

Heimildir sjóðsins til lánveitinga verða takmarkaðar við sértæk lán á
samfélagslegum forsendum eða vegna markaðsbrests. Lán til einstaklinga verða
einskorðuð við þá sem ekki eiga kost á fasteignalánum á ásættanlegum kjörum hjá
öðrum lánastofnunum svo sem vegna staðsetningar fasteignarinnar eða af öðrum
ástæðum. Núgildandi ákvæði um hámarkslán og hámarksverð fasteigna mun haldast
óbreytt og sama máli gegnir um greiðslugetu lántaka og veðhæfi fasteignar. 

Sjóðurinn mun áfram lána til leigufélaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða og
til sveitarfélaga s.s. vegna húsnæðis fyrir fatlað fólk, aldraðra, öryrkja,
námsmenn og vegna hjúkrunarheimila. 

Bókhaldslegur aðskilnaður.

Til að takmarka áhættu sjóðsins og ríkissjóðs og tryggja samræmi við
ríkisstyrkjareglur EES-samningsins er kveðið á um skýran bókhaldslegan
aðskilnað milli eldra lánasafns og skuldbindinga og nýrra lána og
stofnframlaga.