|
|||
2014-03-05 19:38:20 CET 2014-03-05 19:39:23 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - Niðurstöður hluthafafundaHelstu niðurstöður Aðalfundar MarelAðalfundur Marel var haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ 5. mars. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar samhljóða. Ávarp stjórnarformanns Ásthildur Margrét Otharsdóttir stjórnarformaður Marel talaði um þá kraftmiklu hvata sem eru undirliggjandi í rekstrarumhverfi Marel í erindi sínu. Fólksfjölgun, þéttbýlisvæðing og sjálfbærni eru meðal þeirra alþjóðlegu hvata sem munu í framtíðinni drífa áfram hagvöxt sem og framþróun og framgang í þeim iðnaði sem Marel starfar í. Ásthildur talaði fyrir þeirri tillögu stjórnar að greiða ekki arð fyrir árið 2013. “Í ljósi rekstrarniðurstöðu síðasta árs sem endurspeglaði ekki fulla getu félagsins og þeirri staðreynd að nú hefur verið hleypt af stokkunum áætluninni, simpler, smarter, faster leggur stjórn Marel til að enginn arður verði greiddur í ár. Að lokum þakkaði Ásthildur hluthöfum og starfsmönnum Marel fyrir sitt framlag til félagsins. “Með okkar sterku liðsheld, framsæknum vörum og alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti erum við í einstakri stöðu til að auka virði hluthafa,”. Ávarp forstjóra “Rekstrarhagnaður var 43 milljónir evra og tekjurnar voru 662 milljónir evra. Þessi niðurstaða er hvorki í samræmi við markmið né getu félagsins”, sagði Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í erindi sínu á aðalfundi Marel. Þá talaði Árni um áætlunina, simpler, smarter, faster sem nú hefur verið hleypt af stokkunum með það að markmiði að einfalda skipulag félagsins og auka enn frekar þjónustu við viðskiptavini. Nú þegar hafa mörg skref í áttina að þessu markmiði verið tekin. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hafa til að mynda orðið breytingar í skipulagi Marel í kjötiðnaði, skerpt hefur verið á áherslum og vöruframboð þrengt í frystadeild félagsins, langtímafjármögnun félagsins hefur verið framlengd og þá hefur starfsfólki verið fækkað um 75, þar af um 25 millistjórnendur. Ársreikningur samþykktur Fundurinn samþykkti samhljóða ársreikning og skýrslu stjórnar og forstjóra fyrir árið 2013. Heildartekjur Marel á árinu námu 662 milljónum evra og hagnaður eftir skatta nam 20,6 milljónum evra. Ástvaldur Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson koma nýir inn í stjórn Marel Ástvaldur Jóhannsson and Ólafur Guðmundsson koma nýir inn í stjórn Marel. Aðrir kjörnir í stjórn eru Arnar Þór Másson, Ásthildur Margrét Otharsdottir, Ann Elizabeth Savage, Helgi Magnússon og Margrét Jónsdottir. Ný stjórn Marel hefur komið saman og skipt með sér verkum. Ásthildur Margrét Otharsdóttir verður áfram stjórnarformaður og Arnar Þór Másson er varaformaður stjórnarinnar. |
|||
|