|
|||
![]() |
|||
2010-07-20 17:44:13 CEST 2010-07-20 17:45:12 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 19 0226 og RIKS 21 0414Föstudaginn 23. júlí kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá lánamálum ríkisins. Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 19 0226 og RIKS 21 0414. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 28. júlí 2010. Í þessu útboði óskar Lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur Lokagjalddagi Útistandandi fjárhæð* Lánstími RIKB 19 0226 26.2.2019 83.903 m.kr. 8,5 ár RIKS 21 0414 14.4.2021 21.789 m.kr. 11 ár *að nafnverði Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27. júlí 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 28. júlí 2010. |
|||
|