2020-01-21 11:44:38 CET

2020-01-21 11:44:38 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Arion banki: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 3 keypti Arion banki eigin hluti á Nasdaq á Íslandi og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Nasdaq Ísland voru eftirfarandi:

VikaDagsetningTímiFjöldi hlutaViðskiptaverðKaupverð
313.01.202009:33  500.000 83,40  41.700.000 
313.01.202009:36  500.000 83,40  41.700.000 
313.01.202009:43  170.000 83,35  14.169.500 
314.01.202009:30  1.000.000 83,25  83.250.000 
314.01.202013:00  200.000 82,90  16.580.000 
315.01.202009:32  400.000 82,30  32.920.000 
315.01.202009:33  600.000 82,20  49.320.000 
315.01.202009:35  186.000 82,20  15.289.200 
316.01.202011:10  1.000.000 82,00  82.000.000 
317.01.202010:53  300.000 83,10  24.930.000 
317.01.202011:12  90.910 83,10  7.554.621 
317.01.202013:47  500.000 83,20  41.600.000 
317.01.202013:48  300.000 83,20  24.960.000 
Samtals í viku 3    5.746.910    475.973.321 

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

VikaDagsetning Tími Fjöldi heimildar-skírteinaViðskiptaverð (Vegið meðaltal)Kaupverð (SEK)
313.01.2020   168.886 6,42  1.083.471 
314.01.2020   154.440 6,37  984.061 
315.01.2020   150.000 6,30  945.405 
316.01.2020   114.632 6,30  721.952 
317.01.2020   27.505 6,38  175.595 
Samtals í viku 3    615.463    3.910.484 

Um er að ræða viðskipti í samræmi við endurkaupaáætlun bankans sem var hrint í framkvæmd þann 31. október sl., sbr. tilkynningu til beggja kauphalla þann 31. október 2019.

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 3 samtals 47.214.966 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 3 samtals 53.577.339 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,95% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að núverandi endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 43.256.629 hluti og 9.990.418 heimildarskírteini.

Samkvæmt endurkaupaáætlunum bankans verða að hámarki keyptir 59.000.000 hluti/SDR, sem samsvarar 3,25% af útgefnum hlutum í bankanum. Gert er ráð fyrir að kaupa allt að 11.800.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,65% af útgefnum hlutum og allt að 47.200.000 hlutum á Íslandi, sem samsvarar 2,6% af útgefnum hlutum. Fjárhæð endurkaupanna skal að hámarki nema 900.000.000 kr. í Svíþjóð og 3.600.000.000 kr. á Íslandi (samtals 4,5 milljarðar króna).  Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu er náð eða í síðasta lagi 17. mars 2020. Bankastjóri Arion banka hefur heimild til að stöðva áætlunina hvenær sem er á tímabilinu.

Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, framseld reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8 mars 2016.

Nánari upplýsingar veitir Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, sími 856 6760.