|
|||
2011-08-30 19:02:57 CEST 2011-08-30 19:03:57 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirLandsvirkjun gefur út skuldabréf til tíu áraLandsvirkjun undirritaði í dag samning um sölu á skuldabréfum til tíu ára að fjárhæð 70 milljónir Bandaríkjadollara eða að jafnvirði um 8 milljarðar króna. Skuldabréfin bera fasta 4,9% vexti sem greiðast tvisvar á ári en höfuðstóllinn greiðist í einu lagi í lok lánstímans. Umsjónaraðili er Íslandsbanki. Skuldabréfið er mikilvægur áfangi í fjármögnun Landsvirkjunar og verður meðal annars nýtt við fjármögnun framkvæmda á Norðausturlandi sem stefnt er að ráðast í á næsta ári. Landsvirkjun leggur nú mikla áherslu á að tryggja fjármögnun þeirra verkefna sem fyrirtækið hyggst ráðast í á næstu árum í ljósi óvissuástands á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Reykjavík, 30. ágúst 2011 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is |
|||
|