Íbúðalánasjóður hefur samið við Landsbankann um viðskiptavakt með íbúðabréf á eftirmarkaði.
-
Viðskiptavaki Landsbankans hefur einn aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir.
-
Viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að setja fram kaup- og sölutilboð, skv. eftirfarandi töflu, að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi.
Flokkur |
Nafnverð |
HFF150224 |
35.000.000 |
HFF150434 |
25.000.000 |
HFF150644 |
20.000.000 |
-
Viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka skv. töflu hér að neðan.
Flokkur |
Hámarksmunur |
HFF150224 |
0,70% |
HFF150434 |
0,95% |
HFF150644 |
1,10% |
-
Viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef viðskiptavaki á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 300 m.kr. að markaðsvirði, samanlagt í öllum flokkum, er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
Samningurinn gildir til 30. júní 2018.