|
|||
2011-02-07 13:48:57 CET 2011-02-07 13:49:59 CET REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - ÁrsreikningurAfkoma Eyris Invest ehf. 2010Góð arðsemi og traustur efnahagur -- Hagnaður af rekstri Eyris Invest árið 2010 nam 52 milljónum evra [2009; EUR -24 m] -- Heildareignir Eyris eru 426 m evra sem fjármagnaðar eru með eigin fé og langtímalánum -- Eigið fé í árslok 2010 er 187 milljónir evra og eiginfjárhlutfall er 44% [2009; 38%] -- Í árslok 2010 gerði Eyrir samkomulag um langtíma bankalán að fjárhæð samtals 150 m evra. Lánin eru fjölmyntalán með lokagjalddaga í maí 2014 -- Horfur í rekstri Eyris og lykileigna eru góðar. Á síðastliðnum árum hafa félögin stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta góðs af efnahagsbata á heimsvísu. Fjármögnun þeirra er í samræmi við stefnu og alþjóðleg viðmið þar sem nettó skuldir eru á bilinu 2-3 x EBITDA hagnaður Lykileignir Eyris eru 32% eignarhlutur í Marel, 14% eignarhlutur í Össuri og 17% eignarhlutur í Stork BV sem á og rekur Stork-orkuiðnað og Fokker-flugiðnað. Eyrir Invest hefur skilað góðri ávöxtun til hluthafa frá stofnun félagsins á miðju ári 2000 og reiknast innra virði hlutabréfa 18,5 evrusent á hlut um síðustu áramót á móti stofnverði sem var 1,4 evrucent á hlut. Heimsmarkaðsverð hlutabréfa hefur lækkað að meðaltali um 4% árlega sem jafngildir 34% lækkun á sama tímabili (MSCI). Árni Oddur Þórðarson, forstjóri: „Staða Eyris er sterk og við erum að skila myndarlegum hagnaði á árinu 2010 sem er mikill viðsnúningur frá árinu 2009. Í fjárfestingarstarfssemi er betra að meta árangur yfir lengri tímabil en einungis eitt ár í senn. Við erum stolt af því hvernig tekist hefur að skapa verðmæti í Eyri á síðustu 3 árum við um margt erfiðar aðstæður, sem og á þeim 10 árum sem liðin eru frá stofnun félagsins. Stjórnendur og starfsfólk hjá okkar lykilfélögum hafa náð framúrskarandi árangri. Á síðustu árum hafa félögin stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta efnahagsbata á heimsvísu. Við horfum við því björtum augum til framtíðar.“ Eyrir Invest - starfsemi og afkoma Kaupa og styðja til vaxtar stefna Eyris hefur skilað góðri arðsemi síðustu ár. Eyrir hefur verið hluthafi í Marel og Össuri frá árinu 2004 og gerðist hluthafi í Stork í upphafi árs 2006. Stork var afskráð af Amsterdam markaði í ársbyrjun ársins 2008 og samhliða því tók Marel rekstur Stork-matvælaiðnaðar yfir. Í dag rekur Stork BV, Stork-orkuiðnað og Fokker-flugiðnað. Að auki styður Eyrir ýmsa sprota til vaxtar. Síðustu ár hafa lykilfélög Eyris styrkt stöðu sína með stöðugri fjárfestingu í rannsóknum og þróun og frekari markaðsaðgangi. Öll hafa þau skilað vaxandi sjóðstreymi og er fjárhagsstyrkur mikill, með nettóskuldir á móti EBITDA hagnaði um 2-3x í árslok 2010. Eignarhlutur Eyris í Marel sem er 32% af heildarhlutafé félagsins um síðustu áramót, bókast samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eignarhlutur í Marel bókast á 62 evrusent um síðustu áramót til samanburðar við viðskiptaverð 65 evrusent (100 ISK). Frá áramótum hefur hlutabréfaverð Marels haldið áfram að styrkjast í takt við aukin umsvif og bættan rekstur og er nú um 74 evrusent (117,5 ISK). Á árinu 2010 seldi Eyrir 23 m hluta í Össuri og er eignarhlutur Eyris í félaginu því tæp 14% Í árslok. Þar sem eignarhlutur í Össuri fer niður fyrir 15% af heildarhlutafé, er eignarhluturinn bókaður á markaðsvirði frá og með 31. október 2010 í stað hlutdeildaraðferðar áður. Eignarhlutur Eyris í Stork BV er 17%. Stork stendur á tveimur meginstoðum í dag: Stork Technical Services og Fokker Technologies, sem felur annars vegar í sér þjónustu við orkuiðnað og hins vegar þjónustu við flugiðnað. Eyrir metur eignarhlut sinn í Stork samkvæmt gangvirðisaðferð (fair value approach) þar sem stuðst er við kennitölur á markaði og í yfirtökum ásamt sjóðstreymisverðmati. Varfærnu mati er beitt samkæmt gangvirðisaðferð. Samhliða batnandi afkomu og lækkandi skuldsetningu hækkaði bókfært verð á Stork um 6% á árinu 2010. Horfur Horft fram á veginn er búist við góðum vexti og virðisaukningu í þeim atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris Invest tilheyra; matvæla-, heilbrigðis-, orku- og flugiðnaði. Á síðastliðnum árum hafa lykilfélög Eyris stöðugt styrkt markaðsstöðu sína og eru vel í stakk búin til að njóta góðs af efnahagsbata á heimsvísu. Afkoma getur verið breytileg frá ári til árs. Frekari upplýsingar veitir: Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris InvestSími: 525-0200 www.eyrir.is Um Eyri Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Eyrir Invest var stofnað um mitt ár 2000. Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. |
|||
|