|
|||
2017-05-11 10:30:41 CEST 2017-05-11 10:30:41 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Islandsbanki hf. : Fyrsta árshlutauppgjör 2017Fyrsta árshlutauppgjör Íslandsbanka 2017 Helstu niðurstöður: * Hagnaður bankans af reglulegri starfsemi var 3,5 ma. kr., sem er sambærilegt við fyrsta fjórðung ársins 2016. * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1 (CET1) var 10,6% á fjórðungnum, samanborið við 9,4% á 1F16. * Hagnaður eftir skatta var 3,0 ma. kr. samanborið við 3,5 ma. kr. á 1F16. Hagnaðurinn á 1F17 stafar einkum af sterkum grunntekjum. Arðsemi eigin fjár var 7,0% á 1F17, samanborið við 6,9% á sama tímabili 2016. * Hreinar vaxtatekjur voru 7,4 ma. kr. (1F16: 7,5 ma. kr.), sem samsvarar 2,0% lækkun. Vaxtamunur var 2,9% (1F16: 2,9%). * Hreinar þóknanatekjur voru 3,3 ma. kr. á fjórðungnum, samanborið við 3,1 ma. kr. 1F16, sem er 4% hækkun milli ára. * Stjórnunarkostnaður var 6,4 ma. kr. á 1F17, sem er 1,5% lækkun frá 1F16. * Kostnaðarhlutfall var 60,1% (1F16: 59,0%). Bankaskattur og einskiptiskostnaður eru undanskilin við útreikning kostnaðarhlutfalls. * Heildareignir voru 1.029 ma. kr. (des16: 1.048 ma. kr.). Útlán til viðskiptavina og lausafjársafn voru samtals 96% af efnahagsreikningnum. * Útlán til viðskiptavina jukust um 2,3% (15,7 ma. kr.) eða í 703 ma. kr. Ný útlán á fjórðungnum voru 46 ma. kr. og dreifðust vel á mismunandi útlánaeiningar bankans. * Gæði eignasafn bankans heldur áfram að batna, en hlutfall lána með vanskil umfram 90 daga eða með virðisrýrnun var 1,6% (des16: 1,8%). * Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu um 4,5% eða 27 ma. kr. frá árslokum 2016. * Eiginfjárhlutfall var 23,1% (des16: 25,2%) og eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 22,8% (des16: 24,9%). * Lausafjárstaða bankans er áfram sterk og umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið. Við lok mars 2017 var lausafjárhlutfallið (LCR) 181% (des16: 187%) og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 121% (des16: 123%). * Vogunarhlutfall (e. leverage ratio) var 15,5% við lok fjórðungsins samanborið við 16% við lok árs 2016, sem telst afar hóflegt. * Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. Í janúar 2017 hækkaði Fitch mat sitt í BBB/F3 með stöðugum horfum og í október 2016 hækkaði S&P mat sitt í BBB/A- 2 með jákvæðum horfum. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: "Grunnrekstur bankans er áfram stöðugur, en vaxta- og þóknanatekjur standa að baki um 97% af tekjum bankans. Arðsemi eigin fjár af reglulegum rekstri var 10,6%, samanborið við 9,4% á 1F16. Samþykkt var á aðalfundi bankans í mars að greiða út 10 milljarða króna af hagnaði ársins 2016 í arð til hluthafa. Lausa- og eiginfjárhlutföll eru áfram sterk og vogunarhlutfall var áfram hóflegt eða 15.5%. Afnám fjármagnshafta sem tilkynnt var um í mars var stórt skref fyrir íslenskt efnahagslíf. Lánshæfismatseinkunnir ríkissjóðs Íslands hækkuðu í kjölfarið og eins lánshæfismatseinkunnir Íslandsbanka sem standa nú í BBB frá bæði Standard & Poor's og Fitch Ratings. Það er ánægjulegt að sjá rekstur og starfsemi bankans færast í eðlilegra horf. Ný útlán voru 46 ma. kr. á fjórðungnum og dreifðust vel á milli viðskiptavinahópa bankans. Þóknanatekjur hækka um 4% á milli ára, fyrirtækjaráðgjöf bankans hefur lokið stórum verkefnum undanfarið hér heima og erlendis. Við merkjum einnig aukningu á áhuga innlendra og erlendra aðila á áhættuvörnum tengdum vöxtum og gjaldeyri. Einstaklingar og fyrirtæki mega nú fjárfesta í erlendum verðbréfum án takmarkana. Hjá VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, er hægt að kaupa í sjóðum sem fjárfesta eingöngu á erlendum mörkuðum. Í netbanka geta viðskiptavinir bankans nú einnig keypt gjaldeyri fyrir íslenskar krónur og framkvæmt erlendar greiðslur. Í apríl voru útibúin á Kirkjusandi og Suðurlandsbraut sameinuð undir heitinu Laugardalur sem er í dag stærsta fyrirtækja- og einstaklings útibú Íslandsbanka. Eftir þessa breytingu starfrækir Íslandsbanki 14 útibú og telst áfram vera með hagkvæmasta útibúanetið á Íslandi. Samhliða heldur stafræn vegferð bankans áfram og ánægja viðskiptavina eykst, en viðskiptavinir Íslandsbanka eru ánægðastir samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og fjórða árið í röð er bankinn efstur á bankamarkaði." Fjárfestafundur á ensku Markaðsaðilum er boðið upp á símafund kl. 13.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|