2016-08-09 00:51:09 CEST

2016-08-09 00:51:09 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs júní 2016


Vanskil lækka

Vanskil einstaklinga dragast saman. Í lok júní nam fjárhæð vanskila útlána til
einstaklinga 2,1 milljarði króna og var undirliggjandi lánavirði 20,5
milljarðar króna eða um 4,3% útlána sjóðsins til einstaklinga. Til samanburðar
var undirliggjandi lánavirði vanskila útlána til einstaklinga 22,4 milljarðar í
maí. Afrakstur vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu lögaðila hefur skilað
sér í umtalsverðri lækkun vanskila. Fjárhæð vanskila vegna útlána til lögaðila
í lok júní nam 555 milljónum króna og hefur hún lækkað um tæpa 2,5 milljarða
frá upphafi árs 2016. Vanskil ná samtals til 4,8% lánasafnsins, en sambærilegt
hlutfall í ársbyrjun var 6,93%. 

Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu

manaarskyrsla juni.pdf