|
|||
![]() |
|||
2017-05-10 19:48:22 CEST 2017-05-10 19:48:22 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumMonica Caneman lætur af stjórnarsetu í Arion bankaMonica Caneman hefur ákveðið að láta af stjórnarsetu í Arion banka en hún hefur gegnt stjórnarformennsku í bankanum frá árinu 2010. Guðrún Johnsen, sem hefur verið varaformaður á tímabilinu, tekur við sem stjórnarformaður bankans. Monica Caneman: „Ég tók við stjórnarformennsku í Arion banka á árinu 2010. Það hefur verið afar ánægjulegt að taka þátt í uppbyggingu bankans á undanförnum sjö árum og upplifa þær jákvæðu breytingar sem hafa átt sér stað. Þetta hefur verið viðburðaríkur tími þar sem bankinn, rétt eins og íslenskt efnahagslíf, hefur styrkst á öllum sviðum. Arion banki nýtur nú góðrar stöðu á þeim mörkuðum sem hann starfar og er fjárhagslega sterkur. Mikilvægasti drifkraftur bankans er frábært starfsfólk sem hefur staðið sig virkilega vel á undanförnum árum við að byggja upp góðan banka. Nýlegar breytingar á eignarhaldi bankans marka ákveðin þáttaskil. Frekari breytingar á eignarhaldi munu eiga sér stað á næstunni og nýr kafli er því að hefjast. Ég tel rétt á þessum tímapunkti að láta öðrum eftir stjórnarformennsku. Ég þakka stjórnarmönnum bankans, stjórnendum og starfsfólki öllu fyrir farsælt samstarf á undanförnum sjö árum og óska Arion banka velfarnaðar í framtíðinni.“ Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|