2014-05-15 19:17:34 CEST

2014-05-15 19:18:39 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Ársreikningur

Landsbankinn: Afkoma fyrstu þrjá mánuði ársins 2014


Landsbankinn hagnast um 4,3 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2014

Afkoma Landsbankans var jákvæð um 4,3 milljarða króna eftir skatta fyrstu þrjá
mánuði ársins 2014. Hagnaður á sama tímabili árið 2013 nam tæpum 8 milljörðum
króna. Landsbankinn greiddi á fyrsta ársfjórðungi tæplega 20 milljarða króna í
arð til eigenda sinna, en þrátt fyrir það er eiginfjárstaða bankans afar sterk
og eiginfjárhlutfallið langt yfir kröfum eftirlitsaðila. 

Lækkun á hagnaði milli fyrsta ársfjórðungs þessa árs og síðasta árs skýrist
fyrst og fremst af lækkun á vaxtamun, lækkun tekna eigna sem færðar eru á
markaðsvirði og hærri sköttum  Á móti kemur jákvæð virðisbreyting útlána og
hækkun á hreinum þjónustutekjum frá sama tíma árið áður.  Helsta ástæðan fyrir
lækkandi vaxtamun er að dregið hefur úr verðbólgu á milli tímabila. 

Vegna lækkunar á tekjum þá hækkar kostnaðarhlutfallið  töluvert milli þessara
tímabila. Almennur rekstrarkostnaður hækkar lítillega vegna kjarasamninga sem
gerðir voru á fyrsta ársfjórðungi. Þegar horft er framhjá sveiflum í tekjum af
markaðsbréfum er rekstrarkostnaður á áætlun, en reiknað er með raunlækkun á
þessu ári. 

Steinþór Pálsson, bankastjóri segir: „Afkoma Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi
ársins er viðunandi í ljósi þess að vaxtamunur lækkaði töluvert og verðþróun á
markaði var óhagstæð.  Bankinn greiddi myndarlegan arð til hluthafa í mars en
heldur samt sem áður sterkri eigin- og lausafjárstöðu. Samfara batnandi efnahag
hefur áfram dregið úr vanskilum. Markaðshlutdeild bankans á einstaklingsmarkaði
hefur ekki áður mælst jafn há og nú og eins og sjá má m.a. af opnun nýrrar
Fyrirtækjamiðstöðvar í Borgartúni nú í apríl, er stöðugt verið að leita leiða
til að sinna þjónustu við viðskiptavini með hagkvæmari hætti en áður, Við erum
áfram bjartsýn á horfur í rekstri bankans á árinu og áfram verður unnið að
hagræðingu.“ 

Í maí náði Landsbankinn samkomulagi við LBI hf. um breytingar á skilmálum
uppgjörsskuldabréfa sem samið var um í desember 2009. Skuldabréfin voru
upphaflega gefin út á grundvelli ákvarðana Fjármálaeftirlitsins samkvæmt
ákvæðum neyðarlaganna. Fjárhæðin var ákveðin sem mismunur á virði eigna og
skulda sem fluttar voru yfir til Landsbankans. og honum bar að greiða upp fyrir
árið 2018. Lokagjalddagi er nú 2026. Steinþór Pálsson segir þetta mikilvægan
áfanga fyrir Landsbankann: "Þessi breyting styrkir stöðu bankans í nútíð og
framtíð og mun m.a. auðvelda alþjóðlega lánsfjármögnun. Þá felur samkomulagið í
sér að sérstökum hömlum á arðgreiðslur hefur verið hrundið úr vegi, til
hagsbóta fyrir hluthafa bankans. Samkomulagið er háð því að LBI hf. fái
undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál.” 



Helstu stærðir úr rekstri og efnahag fyrsta ársfjórðungs 2014

  -- Hagnaður Landsbankans nam 4,3 milljörðum króna eftir skatta á fyrstu þremur
     mánuðum ársins 2014, samanborið við tæpa 8 milljarða króna á sama tíma á
     árinu 2013.
  -- Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 7,3% samanborið við 14% fyrir sama
     tímabil árið 2013.
  -- Hreinar vaxtatekjur námu 7,9 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum
     ársins í samanburði við 9,9 milljarða króna á sama tímabili árið 2013.
  -- Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu heildareigna lækkar, var 2,7% á fyrstu
     þremur mánuðum ársins en 3,6% á sama tímabili árið 2013.
  -- Hreinar þjónustutekjur námu 1,5 milljörðum króna og hafa aukist um 11% frá
     sama tímabili árið áður.
  -- Almenn rekstrargjöld standa nánast í stað milli tímabila. 
  -- Skattar hafa hækkað um 22% milli tímabila.
  -- Að teknu tilliti til verðbólgu hefur raunhækkun rekstrarkostnaðar milli ára
     verið 3,3%.
  -- Kostnaðarhlutfall fyrstu þrjá mánuði ársins nam 72,0% samanborið við 42,9%
     um áramótin. Rekstrarkostnaður bankans hefur lítið breyst en tekjur bankans
     hafa hins vegar lækkað frá áramótum sem skýrir hækkum kostnaðarhlutfalls.
     Markmið bankans fyrir árið 2014 er að lækka raunkostnað.
  -- Stöðugildi 31. mars voru 1.178.
  -- Eigið fé bankans nam í lok mars um 225,4 milljörðum króna og hefur það
     lækkað um 7% frá áramótum. Landsbankinn greiddi eigendum sínum tæpa 20
     milljarða króna í arð á fyrsta ársfjórðungi ársins sem lækkar eigið fé og
     eiginfjárhlutfall.
  -- Eiginfjárhlutfall bankans (CAR - Capital Adequacy Ratio) er engu að síður
     vel umfram kröfur FME. Það er nú 24,8% en var 26,6% í lok mars 2013.
  -- Heildareignir bankans námu 1.154 milljörðum í lok mars 2014 en það er ekki
     mikil breyting frá áramótum.
  -- Innlán viðskiptavina hafa aukist um 3% frá áramótum eða um 12 milljarða. 
  -- Heildarlánveitingar eru um 33 milljarðar króna, en vegna afborgana annarra
     lána hafa heildarútlán aðeins hækkað um 1,4 milljarða á tímabilinu.
  -- Lausafjárstaða bankans er sterk, bæði í erlendri mynt og í íslenskum
     krónum. Lausafjárhlutfallið var 49% í lok mars 2014 en var 42% á sama tíma
     árið áður.
  -- Gjaldeyrisjöfnuður bankans er í góðu horfi og eignir í erlendri mynt eru um
     18,9 milljarðar króna umfram erlendar skuldir.
  -- Heildarvanskil hjá fyrirtækjum og heimilum stóðu í 5 % í lok mars 2014, og
     hafa farið lækkandi á árinu.



Helstu þættir í rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins 2014

  -- Hið alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtæki Standard & Poor‘s (S&P) veitti í
     janúar Landsbankanum lánshæfiseinkunina BB+ með stöðugum horfum.
  -- Landsbankinn greiddi út arð til eigenda sinna í mars. Arðgreiðslan var í
     samræmi við  samþykkt aðalfundar Landsbankans hf. 19. mars og nam 70% af
     hagnaði síðasta árs eða tæpum 20 milljörðum króna. Arðgreiðslan kom til
     lækkunar á eigin fé á fyrsta ársfjórðungi.
  -- Útgáfa sértryggðra skuldabréfa bankans var aukin um 1,5 milljarð á
     tímabilinu.
  -- Landsbankinn var eitt af fjórum fyrirtækjum sem tilnefnd voru til
     Menntaverðlauna atvinnulífsins 2014.
  -- Landsbankinn hlaut tvær tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna
     sem veitt eru á vegum ÍMARK, félags íslensks markaðsfólks.
  -- Alþjóðlega fjármálaritið Global Finance valdi Landsbankann besta bankann á
     Íslandi.
  -- Alþjóðlega fjármálatímaritið International Finance valdi Landsbankann besta
     bankann á Íslandi og taldi netbanka Landsbankans besta netbankann.
  -- Í mars tók gildi nýtt skipulag útibúa Landsbankans á höfuðborgarsvæðinu og
     eru öll útibú bankans á því svæði eftirleiðis einstaklingsútibú. Um leið
     færast öll viðskipti smærri og meðalstórra fyrirtækja í nýja
     fyrirtækjamiðstöð í Borgartúni 33.
  -- Markaðshlutdeild Landsbankans á einstaklingsmarkaði samkvæmt
     markaðskönnunhefur hækkað nokkuð að undanförnu og mælist nú 35,4% og hefur
     ekki áður mælst jafn há.



Samkomulag við LBI hf.

Skrifað var undir nýjan samning 8. mars 2014 um breytingu á skilmálum
skuldabréfa Landsbankans og LBI hf. sem samið var um í desember 2009.
Lokagjalddagi skuldabréfanna verður nú 2026 í stað 2018, Samkvæmt samkomulaginu
er gert ráð fyrir því að endurgreiðslur verði á tveggja ára fresti og dreifist
nokkuð jafnt. Landsbankinn hefur heimild til að greiða skuldina að hluta eða að
fullu upp án kostnaðar, hvenær sem er á tímabilinu sem er mjög mikilsverður
þáttur fyrir Landsbankann hf. 

Vaxtakjör verða óbreytt til október árið 2018, þ.e. 2,9% álag ofan á LIBOR
vexti. Eftir það fer vaxtaálagið stighækkandi og verður 3,5% vegna gjalddaga
2020 og að lokum 4,05% vegna lokagjalddagans árið 2026. Hver gjalddagi á
tímabilinu frá 2020 til 2026 er að jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna. 

Við þetta lækkar greiðslubyrði Landsbankans hf. verulega og það styrkir
fjárhagslega stöðu bankans. Lágmarks veðhlutfall lækkar úr 124,8% í 115% og
aðgangur  að alþjóðlegri lánsfjármögnun verður auðveldari. Þá verður heimilt að
greiða eigendum bankans arð án þess að sambærileg greiðsla þurfi að renna til
LBI hf.. 

Forsenda þess að samkomulagið taki gildi er að LBI fái tilteknar undanþágur í
samræmi við lög um gjaldeyrismál. 



Helstu atriði framundan í rekstri bankans

  -- Afkoma á fyrsta ársfjórðungi litaðist töluvert af neikvæðri þróun
     markaðseigna en horfur um afkomu ársins eru góðar.  Áfram er unnið að
endurfjármögnun og skjalagerð vegna samninga við LBI
  -- Áfram er unnið að hagræðingu. Til skoðunar er í því sambandi bygging nýrra
     höfuðstöðva með það að markmiði að draga verulega úr stærð þeirra.
  -- Landsbankinn hefur á síðustu fjórum árum fækkað fermetrum í útibúum bankans
     um tæp 30%
  -- Áhersla á að auka gæði útlána og draga úr hlutabréfastöðum
  -- Áhersla á ábyrga markaðssókn, m.a. í íbúðalánum og eignastýringu
  -- Klára leiðréttingu ólögmætra gengistryggðra lána
  -- Vinna við skuldaleiðréttingar í samræmi við aðgerðir ríkisstjórnar og lög
     alþingis



Nánari upplýsingar veita:

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011

Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014