2017-03-07 16:31:00 CET

2017-03-07 16:31:00 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


Fjármálaráðherra felur Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera
samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. 

Aðilar að kauphöll á Íslandi, sem hafa starfsleyfi í samræmi við 1-2. tl. 1.
mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, hafa eigið fé að lágmarki
10 milljónir evra (EUR) og hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í
útboðum ríkisverðbréfa, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum. 

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar
sem markflokkar ríkisverðbréfa eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir
aðgang að verðbréfalánum ríkisverðbréfa í samræmi við reglur og skilmála. 

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisverðbréfa í kauphöll.
Aðalmiðlurum er skylt að setja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. í
hvern markflokk ríkisbréfa með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í
samningunum. 

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af samningi í
tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.
Kauphallaraðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir
að mæta til undirritunar samninga klukkan 15:45 föstudaginn 10. mars 2017 í
húsakynnum Seðlabanka Íslands að Kalkofnsvegi 1. 

Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður hjá Lánamálum
ríkisins í síma 569 9600.