|
|||
2016-11-21 11:04:09 CET 2016-11-21 11:04:09 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Útboð sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 23. nóvember kl. 15:00. Boðinn verður til sölu nýr óverðtryggður markflokkur, LBANK CB 21 en auk hans verða verðtryggðu flokkarnir LBANK CBI 22 og LBANK CBI 28 og óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 19 boðnir til sölu. Verðbréfamiðlun Landsbankans hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. [] |
|||
|